Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 11. mars 2020 22:39
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu skelfileg mistök Adrian gegn Atletico
Mynd: Getty Images
Liverpool er úr leik í Meistaradeildinni eftir tap gegn Atletico Madrid á Anfield í kvöld.

Heimamenn í Liverpool voru betri en náðu aðeins að skora eitt mark í venjulegum leiktíma og því þurfti að fara í framlengingu.

Roberto Firmino tvöfaldaði forystu Liverpool í byrjun framlengingar en spænski markvörðurinn Adrian gerðist sekur um slæm mistök skömmu síðar.

Hann reyndi að hreinsa boltann en mistókst herfilega og gaf knöttinn þess í stað beint á Joao Felix.

Marcos Llorente kláraði sóknina með skoti af vítateigslínunni og kom Adrian engum vörnum við, enda illa staðsettur eftir mistökin.

Markið er hægt að sjá með að smella hér.
Athugasemdir
banner
banner
banner