Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 11. mars 2021 19:34
Ívan Guðjón Baldursson
Björn Bergmann í byrjunarliði Molde
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það eru nokkrir leikir á dagskrá í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld og er Björn Bergmann Sigurðarson í byrjunarliði Molde.

Molde heimsækir Granada til Spánar og fær Björn Bergmann tækifæri í sínum þriðja keppnisleik fyrir sitt nýja félag.

Björn Bergmann fékk lítinn sem engan spiltíma hjá Lilleström í fyrra en er nú kominn til Molde. Hann var í byrjunarliðinu í báðum leikjum liðsins gegn Hoffenheim í 32-liða úrslitum. Þar hafði Molde betur, 5-3 samanlagt.

Björn er aftur í byrjunarliðinu í kvöld og á erfitt verkefni fyrir höndum sér. Hann leiðir sóknarlínu Molde.

Molde: Linde, Pedersen, Sinyan, Gregersen, Haugen, Hestad, Aursnes, Ellingsen, Eikrem, Ulland-Andersen, Björn Bergmann Sigurðarson
Athugasemdir
banner
banner
banner