Heimild: KSÍ
Dregið hefur verið í undankeppni EM 2021/22 hjá U17 kvenna og er Ísland í riðli með Norður Írlandi, Serbíu og Spáni.
Fyrsti hluti keppninnar verður leikinn á tímabilinu 1. ágúst til 14. nóvember, en innan tíðar ræðst það hvar riðill Íslands verður leikinn.
Einnig hefur verið dregið í keppnina hjá U19 kvenna en þar er Ísland í riðli með Serbíu, Svíþjóð og Frakklandi.
Riðlarnir verða leiknir dagana 14.-21. september eða 19.-26. október og verður fljótlega tilkynnt hvar riðill Íslands fer fram.

Fyrirkomulagi keppninnar hefur verið breytt og er leikið með sama fyrirkomulagi og í Þjóðadeild UEFA. Tvær deildir eru í keppninni og er Ísland í A deild.
Undankeppnin er eins og áður í tveimur hlutum, en það lið sem endar í neðsta sæti síns riðils í A deild fellur niður í B deild fyrir næsta hluta undankeppninnar. Þau sex lið sem vinna sína riðla í B deild komast upp í stað þeirra ásamt því liði í þeirri deild sem er með bestan árangur í öðru sæti.
Þær sjö þjóðir sem vinna sína riðla í A deild í öðrum hluta undankeppninnar vinna sér inn sæti í lokakeppni EM 2022.
Lokakeppni U17 verður haldin í Bosníu og Hersegóvínu 3. -15. maí 2022 en lokakeppni U19 í Tékklandi 27. júní - 9. júlí 2022.
Athugasemdir