Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fim 11. mars 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjendanámskeið fyrir dómara í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjendanámskeið fyrir dómara verður haldið í höfuðstöðvum KSÍ (3. hæð) í dag klukkan 17:30.

Ókeypis aðgangur er á námskeiðið, sem stendur yfir í um tvær klukkustundir og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri. Grímuskylda er við komu og brottför, en ekki á námskeiðinu sjálfu þar sem hægt er að tryggja viðeigandi fjarlægðarmörk.

Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður einnig farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir.

Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi. Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk. 100% viðvera á námskeiðinu er skilyrði.

Áhugasamir aðilar sendi tölvupóst á [email protected]. Einungis staðfestar skráningar gefa rétt til setu á námskeiðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner