fim 11. mars 2021 20:23
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Man Utd og Milan: Kessie, Kjær og Tomori bestir
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Franck Kessie var besti maður vallarins er AC Milan gerði 1-1 jafntefli við Manchester United á Old Trafford.

Leikurinn var jafn þar til Rauðu djöflarnir tóku forystuna í upphafi síðari hálfleiks með marki frá hinum efnilega Amad Diallo.

Milan tók öll völd á vellinum í kjölfarið en átti í miklum erfiðleikum með að jafna þar til Simon Kjær stangaði hornspyrnu Rade Krunic í netið í uppbótartíma.

Sky Sports er búið að gefa leikmönnum einkunnir og var Kessie besti maður vallarins, með 8 í einkunn. Hann skoraði glæsilegt mark í fyrri hálfleik sem var dæmt af vegna hendi og stjórnaði miðjuspilinu í síðari hálfleik.

Miðvarðaparið hjá Milan fær einnig 8 í einkunn, en það er myndað af Kjær og Fikayo Tomori sem er hjá félaginu að láni frá Chelsea.

Diallo fékk 7 í einkunn og var meðal bestu leikmanna Man Utd.

Man Utd: Henderson (5), Wan-Bissaka (6), Bailly (6), Maguire (5), Telles (5), McTominay (7), Matic (6), James (6), Bruno Fernandes (7), Greenwood (7), Martial (6)
Varamenn: Diallo (7), Fred (5), Williams (5), Shaw (5)

AC Milan: Donnarumma (7), Calabria (7), Kjaer (8), Tomori (8), Dalot (7), Krunic (6), Meite (6), Kessie (8), Saelemaekers (7), Brahim Diaz (7), Rafael Leao (6)
Varamenn: Tonali (6), Castillejo (6), Kalulu (6)
Athugasemdir
banner
banner
banner