Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 11. mars 2021 10:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hreinn Ingi verður með Þrótturum í sumar
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hreinn Ingi Örnólfsson hefur skrifað undir samning um að leika með Þrótti út þetta tímabil.

Hreinn lék fjóra leiki með liðinu í deild og bikar á síðustu leiktíð en allir leikirnir komu snemma á tímabilinu.

Hann er margreyndur varnarmaður sem gekk í raðir Þróttar frá Víkingi R. árið 2008.

„Með Þrótti hefur Hreinn leikið vel á annað hundruð deildar- og bikarleiki og marga þeirra sem fyrirliði liðsins. Þróttarar bjóða Hrein velkomin á ný í fremstu víglínu," segir í tilkynningu Þróttar.
Athugasemdir
banner
banner
banner