Þýska félagið RB Leipzig er búið að krækja í Brian Brobbey á frjálsri sölu frá Ajax samkvæmt fréttamanninum virta Fabrizio Romano.
Brobbey er ungur framherji sem þykir gríðarlega efnilegur og rennur út á samningi í sumar.
Brobbey er fæddur 2002 og hefur skorað 4 mörk í 11 leikjum með Ajax, þar sem hann hefur alltaf komið inn af bekknum.
Brobbey raðaði inn mörkunum með varaliði Ajax og hefur skorað 25 mörk í 35 leikjum með yngri landsliðum Hollands.
Athugasemdir