Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 11. mars 2021 19:09
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: KR fer áfram eftir jafntefli
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR 1 - 1 FH
0-1 Baldur Logi Guðlaugsson ('38)
1-1 Pálmi Rafn Pálmason ('65)

KR er komið áfram í Lengjubikarnum eftir jafntefli á heimavelli gegn FH í dag.

Baldur Logi Guðlaugsson kom FH yfir undir lok fyrri hálfleiks en Pálmi Rafn Pálmason gerði jöfnunarmark KR-inga í þeim síðari. Mark Baldurs Loga var afar laglegt þar sem skot hans fór upp við samskeytin.

KR endar því með 11 stig eftir 5 umferðir í riðlakeppni Lengjubikarsins og er búið að tryggja sig áfram í úrslitakeppnina. FH endar með 8 stig.

Víkingur R. er í öðru sæti sem stendur og á eftir að spila við Þór í síðustu umferð. Þar þurfa Víkingar sigur til að hirða toppsætið af KR.
Athugasemdir
banner
banner
banner