Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 11. mars 2021 10:30
Elvar Geir Magnússon
Líkleg byrjunarlið Man Utd og AC Milan
Bruno Fernandes er stjörnuleikmaður Manchester United.
Bruno Fernandes er stjörnuleikmaður Manchester United.
Mynd: Getty Images
Klukkan 17:55 í kvöld mætast Manchester United og AC Milan á Old Trafford, í fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

Zlatan Ibrahimovic verður ekki með Milan gegn sínu fyrrum félagi í kvöld en gæti snúið aftur af meiðslalistanum fyrir seinni leikinn.

Það eru líka meiðsli hjá Manchester United en liðið er án Paul Pogba, Marcus Rashford, Edinson Cavani og Donny van de Beek.

Luke Shaw gæti mögulega verið hvíldur en þá byrjar væntanlega Alex Telles. Reiknað er með því að Eric Bailly og Victor Lindelöf muni mynda miðvarðaparið.

Líkleg byrjunarlið:

Man Utd (4-2-3-1): Henderson; Wan-Bissaka, Bailly, Maguire, Shaw; Fred, McTominay; Greenwood, Bruno Fernandes, James; Martial

Milan (4-2-3-1): G Donnarumma; Calabria, Tomori, Kjaer, Dalot; Meite, Kessie; Saelemaekers, Diaz, Krunic; Leao
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner