Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 11. mars 2021 19:59
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu markið: Diallo skoraði úr fyrstu marktilrauninni
Mynd: Getty Images
Táningurinn Amad Diallo kom inn í hálfleik er Manchester United gerði 1-1 jafntefli við AC Milan í Evrópudeildinni í kvöld.

Þetta var í þriðja sinn sem Diallo kemur inn af bekknum fyrir aðallið Man Utd frá komu sinni til félagsins í janúar.

Diallo hafði hægt um sig í fyrstu leikjunum og átti ekki marktilraun en í dag var sagan önnur og skoraði ungstirnið aðeins fimm mínútum eftir innkomu af bekknum, úr sinni fyrstu marktilraun fyrir félagið.

Diallo átti frábært hlaup og fullkominn skalla til að skora eftir stórkostlega sendingu frá Bruno Fernandes.

Markið má sjá hér.

Athugasemdir
banner
banner