Manchester United og AC Milan eru að spila í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar og er staðan markalaus eftir jafnan fyrri hálfleik.
Franck Kessie kom knettinum í netið fyrir Milan en markið réttilega dæmt af vegna hendi. Harry Maguire, fyrirliði Man Utd, fékk kjörið tækifæri til að taka forystuna eftir hornspyrnu en klúðraði ótrúlegu færi.
Bruno Fernandes kom hausnum í knöttinn sem fór yfir á fjærstöngina. Þar kom Maguire í fullkomnu hlaupi og þurfti aðeins að pota knettinum í netið af tæpu meters færi.
Einhvern veginn tókst miðverðinum þó að senda boltann aftur til baka þvert yfir markið.
Sjón er sögu ríkari.
Athugasemdir