Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 11. mars 2021 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Skrautlegt myndband úr leik Barnsley gegn Birmingham
Mynd: Getty Images
Barnsley tók á móti Birmingham í ensku Championship deildinni um síðustu helgi og vann 1-0 sigur, sem var sjöundi sigur liðsins í röð.

Championship deildin er ekki þekkt fyrir að vera sérlega gæðamikil þó að gæðamiklir leikmenn leynist inn á milli. Hún er helst þekkt fyrir að vera grjóthörð deild sem einkennist af mikilli baráttu og liðsanda.

Viðureign Barnsley og Birmingham einkenndist einmitt af baráttu og voru aðeins fjögur skot sem hæfðu rammann allan leikinn, öll komu þau frá heimamönnum.

Hér fyrir neðan má sjá spaugilegt 50 sekúndna myndband úr leik liðanna. Þar snertir knötturinn varla jörðina, heldur skoppar hann á milli vallarhelminga á meðan leikmenn berjast af öllum kröftum.

50 seconds of extremely high quality football from Barnsley vs Birmingham from r/soccer


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner