Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 11. apríl 2019 15:30
Elvar Geir Magnússon
Idrissa Gueye orðaður við Man Utd
Idrissa Gueye í baráttunni.
Idrissa Gueye í baráttunni.
Mynd: Getty Images
The Evening Standard segir að Manchester United hafi áhuga á Idrissa Gueye, miðjumanni Everton.

Sagt er að hann gæti komið í stað Ander Herrera sem verður samningslaus eftir tímabilið. Herrera hefur sterklega verið orðaður við Paris-Saint Germain.

Gueye er 29 ára senegalskur miðjumaður sem var orðaður við PSG í síðasta janýarglugga. Hann hefur spilað 128 úrvalsdeildarleiki fyrir Everton.

Talið er að hann myndi kosta United undir 30 milljónum punda.

United hefur verið orðað við fleiri miðjumenn eins og Saul Niguez hjá Atletico Madrid og Declan Rice hjá West Ham.

Sjá einnig:
Herrera: Man Utd ekki að hugsa það sama og ég
Athugasemdir
banner
banner