fim 11. apríl 2019 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Partey viss um að hann verði áfram í Atletico
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn fjölhæfi Thomas Partey segist ekki vera á förum frá Atletico Madrid.

Partey hefur meðal annars verið orðaður við félög eins og Arsenal, Manchester City og Manchester United. Talað hefur verið um hann sem mögulegan arftaka Ander Herrera hjá United.

Partey, sem er 25 ára, skrifaði undir samning við Atletico 2011 og hans vegferð hjá félaginu er ekki búin.

„Ég hef alist upp hjá Atleti og ég er viss um að ég verði hér áfram," sagði Partey við Cadena COPE.

„Ég veit ekki um annað félag sem mun skilja minn leikstíl eins og þeir gera hérna."

Partey hefur verið í nokkuð stóru hlutverki hjá Atletico síðustu tvær leiktíðir.
Athugasemdir
banner
banner
banner