Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 11. apríl 2019 13:08
Elvar Geir Magnússon
Pogba: Börsungar munu hugsa um sigur okkar gegn PSG
Pogba sendir Börsungum skilaboð.
Pogba sendir Börsungum skilaboð.
Mynd: Getty Images
Paul Pogba telur að endurkoma Manchester United gegn Paris St-Germain í Meistaradeildinni muni verða í huga leikmanna Barcelona þegar þeir mæta United í næstu viku.

Barca leiðir einvígi liðanna 1-0 í 8-liða úrslitum eftir leikinn á Old Trafford í gær en seinni leikurinn verður á Nývangi þann 16. apríl.

United tapaði heimaleiknum gegn PSG í 16-liða úrslitum 0-2 en vann svo 3-1 í París og komst áfram á fleiri útivallarmörkum.

„Við vitum hvar við getum sært þá. Þeir sáu hvað við gerðum gegn PSG og París verður örugglega í huga þeirra," segir Pogba.

„Augljóslega líður þeim vel á sínum heimavelli en bíðum og sjáum. Við skulum sjá hvernig þetta mun enda."

„Auðvitað trúum við því að við getum slegið þá út."
Athugasemdir
banner
banner
banner