Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 11. apríl 2019 19:45
Arnar Helgi Magnússon
Robben búinn að spila sinn síðasta leik fyrir Bayern?
Mynd: Getty Images
Arjen Robben er hræddur um að hann sé búinn að spila sinn síðasta leik fyrir Bayern Munchen.

Samningur Hollendingsins við Bayern rennur út í sumar og mun hann yfirgefa liðið.

Robben er búinn að spila 15 leiki fyrir Bayern á leiktíðinni og skorað í þeim fimm mörk. Hann er hinsvegar ekki búinn að spila síðan í nóvember vegna meiðsla.

„Ég er ekki viss um að ég spili aftur fyrir Bayern Munchen. Þetta er pirrandi en það verður ekki ráðið við þetta," segir Robben.

Endurhæfingin hefur gengið hægt en hann meiddist á kálfa um það leyti sem að hann var að jafna sig af hinum meiðslunum. Robben veit ekki hvað hann gerir eftir tímabilið.

„Það hafa komið einhver símtöl og nokkur lið hafa sýnt áhuga. Ég mun skoða þetta í sumar."

Athugasemdir
banner
banner
banner