James Maddison hefur verið stórkostlegur fyrir Leicester á tímabilinu og einn allra besti leikmaður liðsins. Hann kom til Leicester frá Norwich síðasta sumar.
Ef að sóknartölfræði hans er skoðuð þá er hann einn af þeim sem að skapar flest færi í Evrópu. Hann er búinn að skora sjö mörk og leggja upp sex með Leicester á tímabilinu.
Ef að sóknartölfræði hans er skoðuð þá er hann einn af þeim sem að skapar flest færi í Evrópu. Hann er búinn að skora sjö mörk og leggja upp sex með Leicester á tímabilinu.
Brendan Rodgers, stjóri Leicester er ánægður með drenginn.
„Hann er mikli betri leikmaður en ég átti von á þegar að ég kom hingað. Hann er góður leikmaður en hann þráir það að verða betri," segir Rodgers.
Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands er þó ekki tilbúinn til þess að velja hann í enska landsliðið.
„Það eru enn þá nokkrir leikmenn sem að eru betri en hann og spila í sömu stöðu. Dele Alli, Raheem Sterling, Marcos Rashford og Jesse Lingard. Hann þarf lengri tíma."
Athugasemdir