Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 11. apríl 2019 18:14
Arnar Helgi Magnússon
Young og Shaw taka út leikbönn um helgina
Mynd: Getty Images
Luke Shaw og Ashley Young munu báðir taka út leikbann um helgina þegar Manchester United mætir West Ham í ensku úrvalsdeildinni.

Báðir voru þeir í byrjunarliðinu þegar liðið mæti Barcelona í gærkvöldi. Ashley Young spilaði vægast sagt illa í leiknum og hefur fengið mikla gagnrýni í kjölfarið.

Shaw hefur nú fengið tíu gul spjöld á leiktíðinni í ensku úrvalsdeildinni og þarf því að taka út tveggja leikja bann sem þýðir að hann missir einnig af leiknum gegn Everton aðra helgi.

Diogo Dalot mun að öllum líkindum leysa stöðu hægri bakvarðar í liði Manchester United og ekki er ólíklegt að Marcus Rojo verði í vinstri bakverðinum en Darmian er frá vegna meiðsla.

Eric Bailly er ekki klár í slaginn en hann meiddist í landsleikjahléinu nú fyrir örfáum vikum.
Athugasemdir
banner
banner
banner