Jesse Lingard hefur verið að spila stórkostlega fyrir West Ham frá því hann gekk í raðir félagsins í janúar, á láni frá Manchester United.
Lingard skoraði tvennu í dag þegar West Ham vann 3-2 sigur á Leicester. Hann er stór ástæða þess að West Ham er í fjórða sæti á þessum tímapunkti.
West Ham mun örugglega reyna að kaupa hinn 28 ára gamla Lingard í sumar en það eru sögur um það að Arsenal ætli líka að reyna við hann.
Enska götublaðið Daily Star fjallar um það á þessum sunnudegi að Arsenal hafi áhuga á því að kaupa Lingard.
Lingard hefur komið að tólf mörkum í níu leikjum frá því hann kom til West Ham en það er enginn búinn að skora fleiri mörk í úrvalsdeildinni frá því hann kom til West Ham; átta mörk.
Hér að neðan má sjá mörkin úr leiknum í dag.
Jesse Lingard has been directly involved in 12 Premier League goals [8⚽️ 4🅰️] in 9 appearances in the competition this season.
— Dan Woffenden (@danwoff98) April 11, 2021
Another two goals today. 🔥 pic.twitter.com/Cx8m3CcB1B
Athugasemdir