Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 11. maí 2020 08:50
Elvar Geir Magnússon
Atletico vill skipta við Liverpool - Aubameyang gaf afa sínum loforð
Powerade
Fer Uxinn til Madrídar? Alex Oxlade-Chamberlain.
Fer Uxinn til Madrídar? Alex Oxlade-Chamberlain.
Mynd: Getty Images
Lautaro Martínez.
Lautaro Martínez.
Mynd: Getty Images
Góðan dag og velkomin með okkur í slúðurheima! Partey, Oxlade-Chamberlain, Aubameyang, Ighalo og fleiri koma við sögu. BBC tók saman.

Atletico Madrid vill skipta á miðjumanninum Thomas Partey (25), sem er á óskalista Arsenal, fyrir Alex Oxlade-Chamberlain (26), leikmann Liverpoool. (Sun)

Pierre-Emerick Aubameyang (30), sóknarmaður Arsenal, gaf afa sínum loforð rétt áður en afinn lést. Aubameyang lofaði því að hann myndi einn daginn spila fyrir Real Madrid. (Sun)

Vonir Arsenal um að fá franska varnarmanninn Dayot Upamecano (21) frá RB Leipzig hafa minnkað eftir að umboðsmaður hans sagði kórónaveiruna gera það ólíklegt að leikmaðurinn verði seldur í sumar. (Sport 1)

Liverpool gæti keypt franska miðjumanninn Houssem Aouar (21) frá Lyon. Franska félagið hefur gefið leikmanninum grænt ljós á að fara annað. (L'Equipe)

Kínverska félagið Shanghai Shenhua reiknar með því að nígeríski sóknarmaðurinn Odion Ighalo (30) sem er á láni hjá Manchester United snúi aftur til félagsins áður en kínverski boltinn fer af stað. Áætlað er að deildin hefjist í júlí. (Sky Sports)

Manchester United hefur endurvakið áhuga sinn á argentínska sóknarmanninum Lautaro Martínez (22) hjá Inter. Martínez er gríðarlega eftirsóttur. (Sport)

Viðræður Willian (31) við Chelsea um nýjan samning hafa siglt í strand. Tottenham Hotspur og Arsenal hafa áhuga á að fá hann. (football.london)

Chelsea mun blanda sér í baráttuna um enska miðjumanninn Declan Rice (21) hjá West Ham í sumar ef Real Madrid kaupir franska landsliðsmanninn N'Golo Kante (29). (Mirror)

Borussia Dortmund vill fá enska miðjumanninn Charlie Webster (16) frá Chelsea. (Sun)

Manchester City vill fá franska miðjumanninn Edouard Michut (17) frá Paris St- Germain. (Sky Sports)

Faðir brasilíska miðjumannsins Gerson (22) segir að Arsenal og Tottenham vilji kaupa strákinn frá Flamengo. (ESPN)

Jean-Michel Aulas, forseti Lyon, viðurkennir að það verði erfitt ða halda félögum frá stjörnuleikmönnum liðsins í sumar. Chelsea vill fá sóknarmanninn franska Moussa Dembele (23). (Star)
Athugasemdir
banner
banner
banner