Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 11. maí 2020 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Skiptast Everton og Roma á leikmönnum?
Moise Kean er líklega á leið aftur til Ítalíu
Moise Kean er líklega á leið aftur til Ítalíu
Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Roma gæti boðið enska félaginu Everton að fá hollenska vængmanninn Justin Kluivert í skiptum fyrir Moise Kean en þetta kemur fram á Calciomercato í dag.

Kean, sem er 20 ára gamall, gekk til liðs við Everton síðasta sumar á 27,5 milljónir punda frá Juventus en hefur aðeins skorað eitt mark og lagt upp tvö í 26 leikjum.

Hann gæti verið á leið aftur til Ítalíu en Napoli og AC Milan eru afar áhugasöm um leikmanninn.

Samkvæmt Calciomercato þá vill Roma bjóða Everton að fá Justin Kluivert í skiptum.

Kluivert hefur skorað 7 mörk í 27 leikjum með Roma á þessari leiktíð.

Talið er að Everton vilji losa sig við Kean eftir að hann braut reglur í samkomubanni með því að halda teiti heima hjá sér.
Athugasemdir
banner
banner