Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 11. maí 2022 10:00
Elvar Geir Magnússon
Celtic innsiglar væntanlega skoska meistaratitilinn í kvöld
Ange Postecoglou, stjóri Celtic.
Ange Postecoglou, stjóri Celtic.
Mynd: Getty Images
Celtic hefur verið besta lið skoska boltans þetta tímabilið og er að endurheimta meistaratitilinn úr klóm erkifjendanna í Rangers.

Celtic getur innsiglað titilinn í kvöld. Lærisveinar Ange Postecoglou eru sex stigum á undan Rangers og með miklu betri markatölu.

Celtic heimsækir Dundee United í kvöld og ef liðið tapar ekki þá er meistaratitillinn innsiglaður.

Liðið tryggir sér einnig titilinn sama hvernig þeirra leikur fer ef Rangers misstígur sig gegn Ross County á heimavelli.

Rangers hefur 55 sinnum orðið skoskur meistari en Celtic er að vinna 52. meistaratitil sinn.
Athugasemdir
banner
banner