Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 11. maí 2022 10:20
Elvar Geir Magnússon
Ísland leikur gegn lélegasta landsliði heims í júní
Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari.
Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska karlalandsliðið mun leika vináttuleik gegn San Marínó þann 9. júní næstkomandi og fer leikurinn fram á þjóðarleikvangi San Marínó í Serravalle.

Ísland og San Marínó hafa ekki mæst áður í A-landsliðum karla en San Marínó er í 211. sæti á styrkleikalista FIFA, neðsta sæti. Talað hefur verið um San Marínó sem lélegasta landslið í fótboltasögunni en liðið hefur aðeins einu sinni unnið opinberan leik, það var 1-0 gegn Liechtenstein 2004.

Liðið hefur fengið á sig 4,2 mörk að meðaltali í leik.

Leikur San Marínó og Íslands kemur í stað leiks íslenska liðsins við Rússland í B-deild Þjóðadeildar UEFA, sem fara átti fram 10. júní, en eins og fram hefur komið þá hefur UEFA ákveðið að engir leikir Rússlands í keppninni fari fram.

Jafnframt hefur UEFA ákveðið að lið Rússa muni falla í C-deild Þjóðadeildarinnar þannig að ekkert hinna liðanna þriggja í riðlinum (Ísland, Ísrael, Albanía) getur fallið.

Íslenska liðið leikur því þrjá leiki í Þjóðadeildinni í júní, auk vináttuleiksins við San Marínó. Fyrsti Þjóðadeildarleikurinn er gegn Ísrael ytra 2. júní, annar leikurinn er gegn Albaníu á Laugardalsvelli 6. júní og sá þriðji gegn Ísrael í Laugardalnum 13. júní. Miðasala á heimaleikina tvo mun opna fljótlega.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner