Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   mið 11. maí 2022 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía í dag - Erkifjendur eigast við í bikarúrslitum
Mynd: EPA
Juventus og Inter eigast við í úrslitaleik ítalska bikarsins klukkan 19:00 í kvöld en það má gera ráð fyrir fjörugum leik þar sem tveir erkifjendur berjast um bikarinn.

Talið er að fjandskapurinn milli þessara liða hafi fyrst gert vart við sig árið 1961 en Ítalinn kallar þennan slag, Derby D'Italia.

Það er því svo gott sem hægt að tryggja það að þessi leikur eigi eftir að bjóða upp á mikla hörku og haug af spjöldum.

Juventus hefur unnið bikarinn oftast allra eða fjórtán sinnum en Inter einungis sjö sinnum.

Leikur dagsins:
19:00 Juventus - Inter
Athugasemdir
banner
banner
banner