„Hann er algjör skepna," sagði Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, um norska framherjann Erling Braut Haaland en hann mun ganga til liðs við Manchester City í sumar.
Man City staðfesti samkomulag við Borussia Dortmund um Haaland í gær en enska félagið greiðir 60 milljónir evra fyrir leikmanninn og gerir hann fimm ára samning við félagið.
Haaland fetar þar í fótspor föður síns, Alf-Inge, sem lék með City fyrir hartnær tuttugu árum síðan.
„Góður leikmaður. Man City var aldrei og verður aldrei lið sem vinnur leiki í gegnum einn leikmann. Þeir eru með ákveðin leikstíl og ég held að Erling muni átta sig á því að allt í einu að hann getur skorað fullt af mörkum. Hann mun elska það."
„Það munu koma upp aðstæður þar sem hann verður algjör skepna. Hann hefur meiðst nokrum sinnum hjá Dortmund en hann er algjör skepna. Því miður, þá eru þetta mjög góð kaup," sagði Klopp um Haaland.
Athugasemdir