banner
   mið 11. maí 2022 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Mané: Ég er ekkert án þeirra
Sadio Mané
Sadio Mané
Mynd: EPA
Sadio Mané, leikmaður Liverpool, var hógvær eftir 2-1 sigurinn á Aston Villa í gær en hann gerði sigurmark liðsins um miðjan síðari hálfleikinn.

Mané skoraði 15. deildarmark sitt á tímabilinu er hann stangaði fyrirgjöf Luis Díaz í netið.

Með sigrinum tókst Liverpool að komast upp að hlið Manchester City og eru liðin nú bæði með 86 stig en City með betri markatölu.

Mané hrósaði liðsfélögum sínum sérstaklega eftir leikinn.

„Þetta var góð fyrirgjöf frá Díaz. Ég var í teignum á þessu augnabliki þá þarf maður bara að setja boltann í netið og þó svo ég set ekki alltaf kraft í þetta þá vanalega skora ég samt."

„Ég er ánægðari þegar við vinnum titla. Ég er bara að reyna að njóta hvers einasta augnabliks og reyni að skora og leggja upp. Þetta snýst um liðið og ég er ekkert án þeirra,"
sagði Mané.
Athugasemdir
banner
banner
banner