Íslensku landsliðsmennirnir voru með æfingu klukkan 11:00 að staðartíma í Gelendzhik í Rússlandi í morgun.
Hálftíma fyrir æfingu var þó Gylfi Þór Sigurðsson mættur manna fyrstur til að taka smá séræfingu.
Hálftíma fyrir æfingu var þó Gylfi Þór Sigurðsson mættur manna fyrstur til að taka smá séræfingu.
Gylfi Þór meiddist í leik með Everton í byrjun mars mánaðar og er allur að ná sér eftir það. Hann lék hálftíma gegn Noregi í síðustu viku og á fimmtudaginn síðasta lék hann rúmlega klukkutíma gegn Gana í síðustu vináttulandsleikjum Íslands fyrir HM.
Gylfi er því að gera allt til að vera hvað best undirbúinn fyrir fyrsta leikinn gegn Argentínu á laugardaginn.
Athugasemdir