Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   mán 11. júní 2018 10:30
Arnar Daði Arnarsson
Gelendzhik
Jói Berg: Kvörtum ekki undan smá vindi
Icelandair
Jóhann Berg á æfingu landsliðsins í Rússlandi.
Jóhann Berg á æfingu landsliðsins í Rússlandi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Fyrstu dagarnir hafa verið flottir. Það er gott að komast í gott veður og flottan fótboltavöll. Þetta hefur allt verið mjög flott, hótelið flott og ekkert til að kvarta yfir," sagði Jóhann Berg Guðmundsson, leikmaður Burnley og íslenska landsliðsins fyrir aðra æfingu íslenska landsliðsins í Gelendzhik í Rússlandi.

Það hvessti vel á æfingasvæðinu í morgun en Jói Berg var nú ekki að láta það trufla sig.

„Við erum vanir öllu, við vorum á Íslandi í margbreytilegum veðrum, við erum ekki að fara kvarta undan smá vindi."

Aðstæðan til afþreyfingar á hóteli landsliðins er með ágætum.

„Við erum með smá leikherbergi, borðtennis og pool-borð síðan setjum við myndir á stóran skjá. Þannig það er fullt sem við getum fundið okkur til að gera."

Fimm dagar eru í fyrsta leik Íslands á HM gegn Argentínu. Undirbúningurinn fyrir þann leik fer á fullt í dag.

„Það er allt nokkuð rólegt. Við erum búnir að taka einn fund um Argentínu á Íslandi. Ætli við fundum ekki aftur á næstu dögum og þá fer spenningurinn að magnast. Þetta verður frábær skemmtun og gaman að taka þátt í þessu," sagði Jói Berg.

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner