Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 11. júní 2022 22:02
Brynjar Ingi Erluson
2. deild kvenna: Samira gerði öll þrjú mörkin í sigri Sindra
Sindri vann örugann sigur í dag
Sindri vann örugann sigur í dag
Mynd: Heimasíða Sindra
Samira Suleman skoraði þrennu er Sindri vann Hamar 3-0 í 2. deild kvenna í dag.

Samira, sem var með tvö mörk í deildinni fyrir leikinn í dag, gerði fyrsta mark sitt í leiknum á 8. mínútu áður en hún bætti við öðru á 27. mínútu.

Þrennan kom síðan í hús á 57. mínútu og þar við sat. Öruggur 3-0 sigur Sindra sem er með 6 stig í 4. sæti deildarinnar.

ÍR og Grótta gerðu þá markalaust jafntefli í Breiðholti en ÍR er fyrsta liðið til að taka stig af Gróttu í sumar.

Grótta er á toppnum með 10 stig á meðan ÍR er í öðru sæti með 7 stig.

Úrslit og markaskorarar:

ÍR 0 - 0 Grótta

Sindri 3 - 0 Hamar
1-0 Samira Suleman ('8 )
2-0 Samira Suleman ('27 )
3-0 Samira Suleman ('59 )
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner