Það er svo gott sem staðfest að Perú er búið að tryggja sér sæti á HM í Katar eftir að þrettán sjamanar komu saman í gær og sáu framtíðina.
Péru mætir Ástralíu á mánudaginn í úrslitaleik um sæti á HM í vetur. Sjamanarnir þrettán komu saman í brekku í Líma, höfuðborg Perú, og gerðu allt í sínu valdi til að hjálpa framtíðarmöguleikum landsliðsins.
Þeir spiluðu á hljóðfæri og dönsuðu í kringum mynd af landsliði Síle en notuðu sverð til að stinga í gegnum mynd af landsliði Ástralíu. Sjamanarnir drukku svo ayahuasca drykk, sem er þekktur fyrir að valda ofskynjunum, og sáu framtíðina.
„Við fengum öflugustu sjamana Perú með okkur í þetta verkefni. Við ákváðum að vera 13 talsins vegna þess að leikurinn fer fram 13. júní," sagði Walter Alarcon, sjamani.
„Við vitum að Perú fer til Katar vegna þess að við sáum gleði fólks og mikinn fögnuð."
Sjá einnig:
Frídagur í Perú útaf umspilsleiknum