Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 11. júní 2022 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Göngufótbolti í Borgarnesi
Frá Borgarnesi.
Frá Borgarnesi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Laugardaginn 25.júní verður keppt í göngufótbolta á Landsmóti UMFÍ fyrir 50 ára og eldri en mótið verður haldið í Borgarnesi. Göngufótbolti er afar skemmtilegur og ekki síst fyrir þá sem horfa á leikinn.


Reglur í göngufótbolta eru ekki flóknar en eins og nafnið gefur til kynna þá má ekki hlaupa, einungis ganga. Í hverju liði eru 6 leikmenn, þar af einn markmaður en frekari reglur og upplýsingar um mótið eru á heimasíðu UMFÍ; www.umfi.is

Skráning stendur yfir og hópar hvattir til að mæta og taka þátt í skemmtilegum viðburði.


Athugasemdir
banner
banner