U21 árs landslið Íslands er komið í umspil um sæti á Evrópumótinu eftir magnaðan 5-0 sigur á Kýpur á Víkingsvelli. Portúgal hjálpaði íslenska liðinu með því að vinna Grikkland.
Ísland endar í 2. sæti riðilsins með 18 stig, stigi meira en Grikkland og fer því í umspilið. Liðið verður því í pottinum þegar dregið verður í umspilið þann 21. júní næstkomandi. Drátturinn fer fram í Nyon í Sviss.
Lestu um leikinn: Ísland U21 5 - 0 Kýpur U21
„Ég er bara drullu glaður með það og get bara ekki beðið eftir að fara spila þessa leiki." Sagði Kristall Máni Ingason leikmaður Íslands eftir að umspilsætið var niðurstaðan.
Kristall Máni var ekki í vafa um að Portúgalarnir myndu klára sitt verkefni.
„Ég hafði fulla trú á því að þeir myndu klára Grikkina. Þeir eru með helvíti sterkt lið Portúgalarnir og við hugsuðum bara um okkur og ég vissi að Portúgalarnir myndu klára sitt."
Kristall Máni skoraði tvö mörk í kvöld og lagði upp eitt að auki en hann vildi þó sjálfur meina að hann væri með þrennu og að þetta hafi verið skot á markið en ekki fyrirgjöf í marki Sævars Atla.
„Ég var með þrjú mörk, boltinn var inni hjá Sævari. 100% þrenna."
Nánar er rætt við Kristal Mána Ingason í spilaranum hér fyrir ofan.
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |