Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 11. júní 2022 10:20
Ívan Guðjón Baldursson
Rútuslys fyrir Þjóðadeildarleik - Nedelev fékk höfuðáverka
Mynd: EPA

Todor Nedelev, miðjumaður búlgarska landsliðsins, fékk alvarlega höfuðáverka á ferðalagi liðsins til að spila við Georgíu í ÞJóðadeildinni.


Nedelev var sá eini sem meiddist þegar landsliðsrúta Búlgaríu lenti í umferðarslysi sem hefur verið lýst sem 'alvarlegu' slysi.

Nedelev fékk mikla áverka á höfuðkúpu og þurfti að fara beint í minniháttar aðgerð eftir slysið.

Á meðan slysið verður rannsakað halda landslið Búlgaríu og Georgíu áfram að gera sig klár fyrir sunnudagsslaginn sín á milli.

Nedelev, kantmaður með 44 landsleiki að baki, er enn undir læknaeftirliti og verður ekki með í leiknum á morgun.


Athugasemdir
banner
banner
banner