Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 11. júní 2022 19:47
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Kristall Máni kemur Íslandi yfir
Kristall Máni Ingason gerði mark Íslands
Kristall Máni Ingason gerði mark Íslands
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska U21 árs landsliðið er komið í 1-0 gegn Kýpur í undankeppni Evrópumótsins en það var Kristall Máni Ingason sem gerði mark íslenska liðsins.

Lestu um leikinn: Ísland U21 5 -  0 Kýpur U21

Mark Kristals kom á 11. mínútu. Ísland átti hornspyrnu sem var hreinsuð frá. Kolbeinn Þórðarson kom síðan með fyrirgjöf inn á teiginn á kollinn á Kristal sem skallaði boltann yfir markvörð gríska liðsins.

„JÁJÁJÁ!!! KRISTALL MÁNI INGASON!! Skorar með skalla yfir nafna minn Stefanos Kittos! Virkaði eins og gott flikk sem fór svona skemmtilega í netið! DRAUMURINN LIFIR!!" sagði Stefán Marteinn Ólafsson í lýsingu hér á Fótbolta.net.

Ísland þarf sigur í leiknum og treysta á að Grikkland tapi fyrir Portúgal til að komast í umspil.

Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.

Sjáðu markið hér
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner