Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 11. júlí 2018 21:54
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
2. deild: Dramatík er Völsungur komst upp í annað sætið
Ólafur Jóhann skorar sigurmarkið í kvöld.
Ólafur Jóhann skorar sigurmarkið í kvöld.
Mynd: Hafþór Hreiðarsson
Völsungur 1- 0 Tindastóll
1-0 Ólafur Jóhann Steingrímsson ('91)

Völsungur skaust upp í annað sæti 2. deildar karla með sigri á Tindastóli á heimavelli í kvöld.

Það virðist allt stefna í markalaust jafntefli en fyrsta markið lét ekki sjá sig fyrr en í uppbótartímanum. Það gerði Ólafur Jóhann Steingrímsson, strákur fæddur 1999, fyrir Völsung.

Þetta var fyrsta mark Ólafs fyrir meistaraflokks Völsungs og hann fer ánægður á koddann í kvöld. Bræður Ólafs eru Hallgrímur Mar og Hrannar, leikmenn KA - Guðmundur Óli, einnig leikmaður Völsungs, og Sveinbjörn Már, sem hefur lagt skóna á hilluna.

Hvað þýða þessi úrslit?
Völsungur fer upp í annað sæti deildarinnar með 21 stig. Eftir frábæran sigur í síðustu umferð er Tindastóll í sætinu fyrir ofan fallsæti, tíunda sætinu með sjö stig.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner