Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mið 11. júlí 2018 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
HM í dag - Er fótboltinn í alvöru að koma heim?
Englendingar spila við Króatíu.
Englendingar spila við Króatíu.
Mynd: Getty Images
Leikur dagsins:
18:00 England - Króatía (Moskva)

Það kemur í ljós í kvöld hvort England eða Króatía spili við Frakkland í úrslitaleik Heimsmeistaramótsins í Rússlandi.

Það er gríðarleg stemning í Englandi þessa stundina enda gerist það ekki á hverjum degi að enska landsliðið í fótbolta komist svona langt á stórmóti, hvað þá HM.

Nær England að komast í sinn fyrsta úrslitaleik frá 1966, sinn annan úrslitaleik í heildina? Króatía hefur aldrei komist í úrslitaleik.

Það verður gríðarlega spennandi að sjá hvernig þessi leikur spilast. Hann hefst klukkan 18:00.

Er fótboltinn í alvöru að koma heim?
Athugasemdir
banner
banner