Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   mið 11. júlí 2018 11:30
Magnús Már Einarsson
Nær Fulham að landa Seri á undan stóru félögunum?
Mynd: Getty Images
Fulham er í viðræðum við Nice um kaup á miðjumanninum Jean-Michael Seri.

Fulham er að styrkja hópinn fyrir átökin í ensku úrvalsdeildinni og félagið er reiðbúið að greiða 18 milljónir punda fyrir Seri.

Seri er sjálfur mættur til London en hann fór ekki í æfingabúðir með Nice í síðustu viku.

Fulham óttast hins vegar að stærri félög reyni að skerast í leikinn og kaupa Seri.

Chelsea, Borussia Dortmund og Napoli hafa öll átt í viðræðum við Nice vegna leikmannsins en Fulham ætlar nú að reyna að ná samningum á undan þeim.
Athugasemdir
banner
banner
banner