Loris Karius, markvörður Liverpool, gerði slæm mistök í æfingaleik gegn Tranmere í gærkvöldi.
Karius gerði tvö slæm mistök í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í vor og því vöktu mistökin í æfingaleiknum í gær meiri athygli en ella.
Tranmere leikur í ensku D-deildinni en félagið er í nágrenni Liverpool borgar. Á meðal leikmanna liðsins er Ben Tollitt en hann er sjálfur harður stuðningsmaður Liverpool.
Tollitt virðist hafa litla þolinmæði fyrir Karius því eftir markið hjá Tranmere í gær sneri hann sér við í fagnaðarlátunum og öskraði á Karius: „you're fucking shit"
Atvikið má sjá hér að neðan.
Sjá einnig:
Myndband: Karius með slæm mistök í æfingaleik
Klopp kemur Karius til varnar: Mistök munu gerast
Karius getting told ‘your fucking shit’ by one of the tramere players 😂😂 pic.twitter.com/JZ6DZmc83X
— Josh Evans (@BigEvans100) July 10, 2018
Athugasemdir