Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 11. júlí 2019 05:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Afríkukeppnin í dag - Heldur öskubuskuævintýri Madagaskar áfram?
Leikmenn Madagaskar fagna, halda þeir áfram að koma á óvart?
Leikmenn Madagaskar fagna, halda þeir áfram að koma á óvart?
Mynd: Getty Images
Senegal og Nígería tryggðu sig áfram í undanúrslit með sigrum í gær. Í dag halda 8-liða úrslitin áfram með tveimur leikjum.

Fílabeinsströndin mætir Alsír í fyrri leik dagsins klukkan 16:00. Alsír er taplaust á mótinu og á enn eftir að fá á sig mark. Alsír lagði Gíneu í 16-liða úrslitinum, 0-3.

Fílabeinsströndin hefur unnið alla sína leiki nema einn. Liðið tapaði gegn Morokkó í riðlakeppninni.

Spútníklið Madagaskar mætir Túnis í seinni leik dagsins. Madagaskar hefur náð ótrúlegum árangri eftir að hafa byrjað í for-forkeppni Afríkukeppninnar. Madagaskar er í 101. sæti FIFA listans sem gefinn var út í lok júní. Liðið fór þá upp um 21 sæti og búast má við því að liðið hækki sig ennfrekar á næsta lista.

Túnis er komið í 8-liða úrslit eftir að hafa ekki unnið leik í venjulegum leiktíma. Liðið gerði þrjú jafntefli í riðlakeppninni og sirgraði svo Gana í 16-liða úrslitunum.

Afríkukeppnin 8-liða úrslit
16:00 Fílabeinsströndin - Alsír
19:00 Madagaskar - Túnis
Athugasemdir
banner
banner
banner