Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fim 11. júlí 2019 16:30
Brynjar Ingi Erluson
Leipzig í viðræðum við Everton um Lookman
Ademola Lookman
Ademola Lookman
Mynd: Getty Images
Þýska félagið RB Leipzig er að ganga frá kaupum á Ademola Lookman, framherja Everton á Englandi. Þetta kemur fram í Daily Mail.

Lookman er 21 árs gamall og er uppalinn hjá Charlton en hann var keyptur til Everton árið 2017.

Everton lánaði hann til Leipzig í janúar árið 2018 og stóð hann sig afar vel hjá félaginu.

Leipzig vildi kaupa hann síðasta sumar en Everton vildi ekki leyfa leikmanninum að fara. Nú er hins vegar hlóðið annað í Everton og virðist Leipzig nálægt því að ganga frá kaupum á honum.

Kaupverðið er talið nema um 22,5 milljónir punda og á aðeins eftir að ganga frá nokkrum smáatriðum.

Lookman á 4 mörk í 48 leikjum fyrir Everton en hann skoraði 5 mörk í 11 leikjum á hálfu ári hjá Leipzig.
Athugasemdir
banner
banner
banner