Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 11. júlí 2019 07:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Roma leitar að arftaka Manolas - Sýnir Alderweireld áhuga
Mynd: Getty Images
Roma leitar að nýjum miðverði eftir að félagið seldi Kostas Manolas til Napoli og þá er Ivan Marcano mikið orðaður við sitt fyrrum félag, Porto.

Roma er að skoða þá Gianluca Mancini, leikmann Atalanta og annað hvort Toby Alderweireld eða Marc Bartra sem leikur með Real Betis.

Mancini er talinn kosta um 22 milljónir punda. Alderweireld er falur fyrir 25 milljónir punda út 26. júlí en þá rennur út klásúla í samningi hans.

Alderweireld hefur leikið 116 deildarleiki fyrir Tottenham og skorað í þeim fimm mörk. Hann kom til Spurs árið 2015 frá Atletico Madrid. Alderweireld er þrítugur og hefur leikið 90 landsleiki fyrir Belgíu.
Athugasemdir
banner
banner