Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   sun 11. júlí 2021 16:54
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Andri Hjörvar: Hún hleypur alveg á milljón í langan tíma
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Við erum frekar súrar, við vildum þrjú stig, ná í fyrsta heimasigurinn í sumar en það tókst því miður ekki þannig að við erum svona pínu súrar." sagði Andri Hjörvar Albertsson þjálfari Þór/KA eftir 1-1 jafntefli gegn ÍBV í dag.

Lestu um leikinn: Þór/KA 1 -  1 ÍBV

Hvað lagðir þú upp með fyrir leikinn?

„Bara vera aggressive og þora að gera hlutina, sækja vel á þær og reyna ná yfirhöndinni strax í byrjun, láta þær vita að við værum komnar til að afgreiða málin, það gekk svona la la en niðurstaðan jafntefli, við hefðum viljað meira."

Andra fannst Colleen Kennedy markaskorari liðsins vera orðin ansi þreytt, þess vegna hafi hann tekið hana af velli á 63. mínútu.

„Bara þreyta. Þetta er leikmaður sem hleypur alveg á milljón í langan tíma, hún er búin að gera það í síðustu tveimur leikjum, okkur fannst við sjá þreytumerki á henni þannig að þetta var smá taktík að fá ferskar fætur inná."

Andri tekur stiginu þó svo hann hefði viljað stigin þrjú.

„Það er erfitt að leggja mat á þetta, stig er stig og lið ættu oft að vera sátt með stig í þessari deild því hvert stig er dýrmætt en þrjú stig hefðu verið svakalega góð hér í dag, hefðum farið uppfyrir ÍBV til dæmis og hleypt ennþá meira lífi í þessa skemmtilegu deild"

Athugasemdir
banner
banner