Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 11. júlí 2021 07:30
Victor Pálsson
Ceballos útilokar ekki endurkomu til Englands
Mynd: EPA
Dani Ceballos er opinn fyrir því að spila í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Ceballos staðfesti þetta sjálfur í viðtali við AS þar sem hann útilokaði ekki endurkomu til Englands.

Ceballos var í láni hjá Arsenal á síðustu leiktíð en hann er samningsbundinn Real Madrid.+

Óvíst er hvort Ceballos verði notaður á næsta tímabili undir stjórn Carlo Ancelotti og gæti hann þurft að færa sig.

Ekki er vitað hvort Arsenal vilji semja við Ceballos á ný sem er 24 ára gmall miðjumaður.

Ceballos hefur spilað 56 leiki fyrir Real á ferlinum.
Athugasemdir
banner
banner