Englendingar leiða 1-0 í úrslitaleik Evrópumótsins þegar fyrri hálfleikur er langt á veg kominn.
Luke Shaw kom Englandi yfir þegar tæplega tvær mínútur voru liðnar af leiknum.
Sjá einnig:
Aldrei komið mark eins snemma í úrslitaleik EM og núna
Það er þétt setið á Wembley í kvöld og góðir gestir í VIP-stúkunni. Þar situr David Beckham, fyrrum landsliðsfyrirliði Englands, við hliðina á leikaranum Tom Cruise.
Cruise er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt í Top Gun og Mission Impossible.
Það fór vel með Cruise og Beckham eftir markið eins og sjá má hér að neðan.
Tom Cruise 🤝 David Beckham
— sandeep_sanmeyo (@sandeep_sanmeyo) July 11, 2021
At Wembley #Euro2020Final #ItalyEngland #EURO2020 pic.twitter.com/mi0vSxRFFI
Athugasemdir