Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 11. júlí 2021 22:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndir: Kampakátir Ítalir og Englendingar í molum
Mynd: EPA
Ítalir eru Evrópumeistarar eftir dramamikinn úrslitaleik á Wembley í London í kvöld.

Leikurinn fór alla leið í vítaspyrnukeppni og þar höfðu Ítalir betur.

Gareth Southgate tók tvöfalda skiptingu undir lok framlengingarinnar. Marcus Rashford og Jadon Sancho komu inn á til að taka vítaspyrnur. Þeir fóru báðir á punktinn í vítaspyrnukeppninni en klúðruðu báðir.

Jorginho gat tryggt sigur Ítalíu en Jordan Pickford varði frá honum. Það var mikil ábyrgð sett á herðar hins unga Bukayo Saka sem tók fimmtu og síðustu spyrnu Englands. Gianluigi Donnarumma varði frá honum og var hetja Ítalíu.

Það voru auðvitað miklar tilfinningar í spilinu eftir leik en hér að neðan má sjá myndir frá EPA sem voru teknar eftir leik.
Athugasemdir
banner
banner
banner