Mexíkóski sóknarmaðurinn Hirving Lozano var borinn af velli í fyrsta lek Mexíkó í Gullmótinu í nótt en hann lenti í hrottalegu samstuði við markvörð Trínidad og Tóbagó.
Lozano er á mála hjá Napoli og er skærasta stjarna Mexíkó en ekki eru miklar líkur á því að hann spili meira á mótinu.
Hann var borinn af velli gegn Trínidad og Tóbagó í nótt eftir að hann fékk boltann inn fyrir og lenti svo á markverði andstæðingsins.
Varnarmaður Trínidad fór í Lozano sem varð til þess að hann datt á markvörðinn sem kom á ferðinni.
Ástand Lozano er stöðugt og er hann allur að koma til en hann var heppinn að ekki fór verr. Hægt er að sjá brotið hér fyrir neðan.
Hirving Lozano neck injury 🤕
— ✈ (@evertonfinest) July 11, 2021
This looks so bad. Praying for a speedy recovery to him 🙏🏼
pic.twitter.com/fbW0Dit3f4
Athugasemdir