Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 11. ágúst 2019 18:28
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Daniel James: Mig hefur dreymt um þetta
Mynd: Getty Images
„Það er erfitt að lýsa þessari tilfinningu," sagði Daniel James, leikmaður Manchester United, eftir 4-0 sigur gegn Chelsea.

Hinn 21 árs gamli James kom inn á sem varamaður á 74. mínútu og hann skoraði á 81. mínútu. Hann fagnaði af mikilli ástríðu, en á síðasta tímabili lék hann með Swansea í Championship-deildinni.

„Að koma inn á og skora í fyrsta leiknum, mig hefur dreymt um þetta. Ole (Gunnar Solskjær) sagði mér að vera tilbúinn að koma inn á. Hann sagði mér að fara inn á völlinn og njóta þess að spila."

„Allt sem við höfum verið að vinna í á undirbúningstímabilinu, við gerðum það í dag - hápressa og að vinna boltann aftur. Við héldum boltanum vel, jafnvel í stöðunni 3-0 og 4-0."

„Það verður gaman að fara inn í vikuna með þessi úrslit á bakinu."
Athugasemdir
banner
banner