Davíð Þór Viðarsson, fyrirliði FH, var að vonum sáttur eftir 3-2 sigurr gegn Val í stórleik umferðarinnar í Pepsi Max-deild karla. Davíð Þór var frábær í leiknum og var til að mynda valinn maður leiksins af Fótbolta.net.
„Við erum ótrúlega ánægðir að hafa náð að snúa þessu við eftir að hafa lent 2-1 undir þar sem að við sýndum þvílíkan karakter." sagði Davíð Þór eftir leikinn.
„Við erum ótrúlega ánægðir að hafa náð að snúa þessu við eftir að hafa lent 2-1 undir þar sem að við sýndum þvílíkan karakter." sagði Davíð Þór eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Valur 2 - 3 FH
FH-ingar komust með sigrinum uppí þriðja sæti í þessari gríðarlegu jöfnu deild.
„Þessi deild er að spilast þannig að það eru öll lið að vinna alla. Ég held að við séum komnir í þriðja sæti þannig að tveir sigrar í röð eru fljótir að koma þér upp töfluna."
Framundan hjá FH er leikur gegn KR í undanúrslitum Mjólkurbikarsins og lýst Davíð Þór gríðarlega vel á það verkefni.
„Ef við spilum svona verður þetta hörkuleikur á móti KR sem að hafa verið langbesta lið landsins í sumar. Þeir töpuðu í dag þannig að ég býst við að þeir mæti dýrvitlausir í Kaplakrikann." sagði Davíð Þór aðspurður um framhaldið.
Nánar er rætt við Davíð í spilaranum að ofan.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir