Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 11. ágúst 2019 20:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rússland: Arnór fór meiddur af velli
Mynd: Eyþór Árnason
Landsliðsmennirnir, Arnór Sigurðsson og Hörður Björgvin Magnússon, voru báðir í byrjunarliði CSKA Moskvu þegar liðið gerði jafntefli við Sochi á heimavelli í dag.

Leikurinn var í rússnesku úrvalsdeildinni, CSKA var meira með boltann og átti fleiri marktilraunir en inn fór boltinn ekki.

Leikurinn endaði markalaus.

Hörður Björgvin lék allan leikinn, en Arnór fór meiddur af velli í fyrri hálfleiknum. Við óskum Arnórs góðs bata og vonandi að það sé ekki alvarlegt. Það eru landsleikir í næsta mánuði og Arnór verður pottþétt í hópnum ef hann er heill heilsu.

CSKA er í öðru sæti deildarinnar með 10 stig eftir fimm leiki.
Athugasemdir
banner
banner