Seamus Coleman mun ekki taka þátt í vináttulandsleik Írlands gegn Póllandi í dag vegna meiðsla.
Coleman var fyrirliði Íra í 4-1 tapi gegn Wales í síðustu viku en meiddist í kjölfarið á æfingu.
Ekki er vitað hversu alvarleg meiðslin eru en leikmaðurinn er nýstiginn upp úr meiðslum sem héldu honum frá í tæpt ár.
Everton mætir West Ham í ensku úrvalsdeildinni næstu helgi en óvíst er hvort Coleman verði orðinn leikfær.
Athugasemdir